
|
29.07.2010 | 6:00 | Kristinn | Mótahald
Unglingalandsmót UMFÍ hefst í dag
Útlit er fyrir að þetta verði fjölmennasta unglingalandsmót frá upphafi. Síðasta landsmót fór fram á Sauðárkróki í fyrra og voru þátttakendur 1500 og heildargestafjöldi um 10-12 þúsund. Mótin þar áður voru þátttakendur um 1000 talsins. Keppt verður í aldursflokkum drengja og stúlkna 11-12 ára, 13-14 ára, 15-16 ára og 17-18 ára. Leikið er eftir hefðbundnum leikreglum en leiktími er 2x8 mínútur og í elsta flokknum er leikið 4 gegn 4. Meðal þátttakenda eru margir leikmenn úr yngri landsliðum íslands sem léku í sumar á NM og í Danmörku á móti U15 en lista yfir þátttakendur og dagskrá mótsins er hægt að finna á vef UMFÍ hérna. |