22 nóv. 1999Íslenska landsliðið flaug til London í gær á leið sinni til Úkraínu. Á miðvikudag mætir liðið heimamönnum í Kiev, en það er fyrsti leikur liðsins í undanúrslitariðli Evrópukeppni landsliða 2001. Friðrik Ingi Rúnarsson valdi ellefu leikmenn til fararinnnar, þeir eru: Falur Harðarson, Herbert Arnarson, Páll Axel Vilbergsson, Guðmundur Bragason, Hermann Hauksson, Hjörtur Harðarson, Jónatan Bow, Ólafur Ormsson, Friðrik Stefánsson, Fannar Ólafsson og Örlygur Sturluson. Liðið heldur áfram til Kiev um hádegi í dag.