24 nóv. 1999Ísland tapaði fyrir Úkraínu 66-44 í fyrsta leik undanúrslitariðils Evrópukeppni landsliða í Kiev í Úkraínu í dag. Heimamenn náði strax 11-1 forystu í byrjun leiksins og á brattann var að sækja fyrir íslenska liðið. Í hálfleik var staðan 34-21. Í síðari hálfleik náði íslenska liðið að minnka muninn í 6 stig 48-42, en lengra komst það ekki.