6 des. 1999Linda Stefánsdóttir leikmaður KR í 1.deild kvenna náði merkum árangri í seinni leik KR gegn KFÍ um helgina. Um leið og Linda stal fimmta bolta sínum í leiknum náði hún þeim 500. frá því að tölfræði var fyrst tekin saman í 1. deild kvenna 1994. Linda hefur stolið þessum 500 boltum í 96 leikjum sem gerir 5,21 stolna bolta að meðaltali. Linda hefur nú stolið 29 boltum í 7 leikjum í vetur en mest hefur hún náð 18 boltum af andstæðingum sínum í einum leik. Linda hefur annars stolið flestum boltum á fjórum af þeim fimm tímabilum sem tölfræðin hefur verið tekin saman. Linda hefur 130 bolta forystu á næstu konu sem er Alda Leif Jónsdóttir, núverandi leikmaður Keflavíkur og forystukona í stolnum boltum í ár en Alda Leif hefur stolið 37 boltum í vetur í átta leikjum.
Samtals Leikmaður               Lið                  Leikir Meðaltal 
500     Linda Stefánsdóttir     ÍR/Valur/KR              96     5,21 
370     Alda Leif Jónsdóttir    Valur/ÍS/Keflavík       103     3,59 
331     Anna María Sveinsdóttir Keflavík                102     3,24 
302     Penny Peppas            Breiðablik/Grindavík     72     4,19 
286     Guðbjörg Norðfjörð      KR                      103     2,78