18 des. 1999Síðasti leikurinn í 1. deild karla fyrir jól fór fram í Smáranum í dag þegar ÍR sigraði Breiðablik 87-67. Þór Þorlákshöfn er á toppi deildarinnar, hafa ekki tapað leik enn sem komið er. Árangur þeirra undan farin ár er athyglisverður, síðasta tímabil töpuðu þeir aðeins 2 leikjum í deildinni og árið þar áður töpuðu þeir 4 leikjum. Samtals á þessum þremur tímabilum hefur Þórsliðið unnið 39 af 45 deildarleikjum sem er ótrúlegt 86% sigurhlutfall í 1.deildinni. Heimavöllurinn hefur reynst þeim vel, en þar hafa þeir ekki tapað deildarleik síðan 7. mars 1998 þegar þeir töpuðu fyrir Stjörnunni 79-105. Þetta eru 13 sigurleikir í röð á heimavelli en Þór hefur unnið 9 deildarleiki í röð.