6 apr. 2000Íslenska unglingalandsliðið tekur þátt í undanúrslitariðli Evrópumótsins 11.-15. apríl nk. Leikið er í Saarlouis í Þýskalandi. Íslenska tók þátt í undankeppni á Írlandi í ágúst á síðasta ári og vann sér rétt til áfram haldandi þátttöku í keppninni. Þá voru mótherjarnir Tyrkland, Belgía, Holland, Írland og Portúgal. Ísland sigraði alla mótherja sína í þeirri keppni nema Tyrki. Þrjár efst þjóðirnar í riðlinum í Saarlouis komast í úrslitakeppnina sem verður í Króatíu í júlí nk. Aðeins einu sinni áður hefur UL-lið komast jafn langt og þetta 1982-lið, en það var hið sterka 1976-lið undir stjórn Axels Nikulássonar sem komast alla leið í úrslitakeppni Evrópumótsins árið 1993. Íslenska liðið hefur áður leikið gegn Finnum á Norðurlandamótinu í Hveragerði í desember 1998. Þá unnu Finnar nauman sigur í jöfnum leik 70-74. Eftirtaldir leikmenn skipa íslenska liðið: Nafn Félag Staða Hæð Ulandsl. Ólafur Jónas Sigurðsson ÍR Bakvörður 180 12 Hreggviður Magnússon ÍR Framherji 195 7 Ómar Sævarsson ÍR Miðherji 197 12 Sigurður Tómasson ÍR Bakvörður 193 0 Jakob Örn Sigurðarson KR Bakvörður 190 12 Jón Arnór Stefánsson KR Bakvörður 194 5 Hjalti Kristinsson KR Framherji 193 5 Helgi Már Magnússon KR Framherji 195 7 Ólafur Guðmundsson Hamri Framherji 191 5 Hlynur Bæringsson Skallagrím Miðherji 190 12 Helgi Freyr Margeirsson Tindastól Framherji 190 12 Erlendur Ottesen ÍA Miðherji 198 0 Þjálfari: Sigurður Hjörleifsson Aðst. þjálfari: Eggert Garðarsson Fararstjóri: Stefán Eggertsson Dómari: Leifur Garðarsson Athygli vekur að átta leikmenn af tólf í liðinu koma frá Reykjavíkurfélögunum ÍR og KR og enginn leikmaður af Suðurnesjum er í liðinu. Liðið heldur til Þýskalands þann 10. apríl og kemur heim þann 16. apríl. Leikir íslenska liðsins verða sem hér segir: 11. APRÍL ÍSLAND - FINNLAND 12. APRÍL LITHÁEN - ÍSLAND 13. APRÍL ÞÝSKALAND - ÍSLAND 14. APRÍL ÍTALÍA - ÍSLAND 15. APRÍL ÍSLAND - LETTLAND