12 apr. 2000Leik Íslands og Litháen á Evrópumóti unglinga í Saarlouis í Þýskalandi er nú lokið. Litháen hafði fjögurra stiga sigur, 72-68, í hörkuleik. Að sögn Sigurðar Hjörleifssonar þjálfara íslenska liðsins þá áttu íslensku leikmennirnir í erfiðleikum með hávaxa Litháa sem höfðu yfirburði í fráköstum. Íslenska liðið hitti ekki vel í leiknum í dag, en baráttan var til staðar og með smá heppni hefði sigurinn getað lent okkar megin. Sigurður sagðist engu kvíða fyrir næstu leiki, íslenska liðið ætti góða möguleika í þeim öllum. Stig Íslands í dag: Hreggviður Magnússon 19, Helgi Margeirsson 11, Jón Arnór Stefánsson 10, Hlynur Bæringsson 10, Jakob Sigurðarson 8, Helgi Magnússon 6, Hjalti Kristinsson 2, Ómar Sævarsson 1.