3 ágú. 2000Jón Nordal Hafsteinsson leikmaður B-liðs Íslands á Poal Cup átti mjög góðan leik gegn Dönum í gær. Jón gerði 12 stig, hirti 13 fráköst og varði 7 skot. Jón er nú í efsta sæti yfir varin skot á mótinu, hefur varið 10 skot í tveimur leikjum sem er frábær árangur. Íslenska B-liðið átti prýðis góðan síðari hálfleik gegn Dönum, munurinn var 5 stig þewgar skammt var til leiksloka, en Danir náðu að sigra með 9 stiga mun. Sjá nánar á Polar Cup síðunni.