3 ágú. 2000Íslenska drengjalandsliðið tapaði fyrir Finnum 61-73 á Evrópukeppni drengjalandsliða í Södertålje í Svíþjóð í gær. Magnús Pálsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 17 stig, Jóhann Árni Ólafsson gerði 15, Davíð Hermannsson 11, en aðrir minna. Íslenska liðið mætir Svíum í dag.