3 ágú. 2000Gríðarleg spenna var í íþróttahúsinu í Keflavík undir lok leiks Íslendinga og Svía. Birgir Örn Birgisson tók síðasta skotið og boltinn vó salt á körfuhringunum. Flauta tímavarðar gall og einn Svíinn mokaði boltanum af körfuhringnum. Flestir voru á því að dæma hefði körfu og hefði leiknum þá verið framlengt. Dómararnir voru á öðru máli og stóðu fastir á sínu. Heimasíða KKÍ hefur leitað til reyndra aðila sem vilja meina að dómararnir hafi haft rétt fyrir sér. KKÍ hefði hins vegar alveg verið til í framlengingu. Í dag eru þrír skemmtilegir leikir á dagskrá Polar Cup.