9 ágú. 2000Kvennalandsliðið hélt utan í morgun til þátttöku í Norðurlandamóti - Polar Cup. Mótið fer fram í Bergen í Noregi dagana 10.-13. ágúst. Jón Örn Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur valið liðið sem tekur þátt í mótinu og var það kynnt á blaðamannafundi á veitingastaðnum Ruby Tuesday nú í hádeginu. Eftirtaldir leikmenn eru í liðinu: Nafn Félag Landsl.fj. Hæð Aldur Gréta M. Grétarsdóttir KR 10 173 20 Helga Þorvaldsdóttir KR 27 178 24 Hildur Sigurðardóttir KR 5 170 19 Alda Leif Jónsdóttir Keflavík/Holbæk 18 174 21 Birna Valgarðsdóttir Keflavík 23 180 24 Erla Reynisdóttir Keflavík/USA 18 165 22 Erla Þorsteinsdóttir Keflavík 16 183 22 Kristín Blöndal Keflavík 23 170 28 Kristjana Magnúsdóttir ÍS 6 180 23 Lovísa Guðmundsdóttir ÍS 0 180 25 Signý Hermannsdóttir ÍS/USA 6 182 21 Sigríður Guðjónsdóttir KFÍ 0 178 22 Eins og sjá má eru þær Lovísa og Sigríður nýliðar. Lovísa hefur reyndar áður verið í landsliðinu, hún var í liðinu sem fór til Bandaríkjanna í nóvember 1998, en leikir í þeirri ferð voru ekki leiknir opinberir landsleikir heldir leikir gegn háskólaliðum. Sigríður er fyrsta konan frá Ísafirði sem leikur með A-landsliði. Ísland mætir Finnum í fyrsta leik mótsins 10. ágúst. Daginn eftir verður leikið gegn Svíum og 12. ágúst verða Danir mótherjar íslenska liðsins. Lokaleikurinn verður síðan gegn gestgjöfunum Normönnum 13. ágúst. Með Jóni Erni í föruneyti verður Haraldur Sæmundsson sjákraþjálfari. Fararstjóri verður Björg Hafsteinsdóttir og dómari fyrir Íslands hönd á mótinu verður Sigmundur Már Herbertsson.