11 ágú. 2000Laugardaginn 19. ágúst mun Jim Baker koma hingað og halda dagsnámskeið, námskeiðið mun verða frá klukkan 09.00 til 17.00. Hádegishlé verður tekið klukkan 1200 og námskeiðið heldur áfram klukkan 1300. Það verður fjölbreytilegur pakki af fyrirlestrum og eiga allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Einstaklingsæfingum verður gerð góð skil þar sem yngri flokka þjálfarar geta bætt í safnið sitt. Einnig verður að finna hluti fyrir þá sem eru lengra komnir. Þátttökugjald í námskeiðinu er kr. 1.500 og er hádegismatur þar innifalinn. Skráning er hjá Friðrik Inga á fingi@toto.is