25 sep. 2000Í dag fer nýr vefur KKÍ, kki.is, í loftið. Vefurinn er allur hinn glæsilegasti og þar geta körfuknattleiksáhugamenn fundið ýmislegt við sitt hæfi. Upplýsingar um leiki og lið, tölfræði leikja og úrslit, auk margvíslegra upplýsinga sem KKÍ vill koma á framfæri. Þá er hægt að sækja ýmis eyðublöð varðandi körfubolta á síðuna. Einnig hefur gagnagrunnur með úrslitum og tölfræði úrvalsdeildar frá upphafi verðið endurbættur og gerður mun aðgengilegri fyrir netverja. Þessi gagnagrunnur er einstakur í sinni röð en þar eru úrslit allra úrvalsdeildarleikja frá keppnistímabilinu 1978-79 til dagsins í dag skráð. Einnig er stigaskor allra leikmanna frá upphafi í grunninum svo og þær villur sem þeir hafa fengið á sig og vítanýting þeirra. Frá 1988 er einnig skráð skotnýting og öll önnur almenn tölfræði. Í grunninum eru alls 2.436 leikir á þeim 22 keppnistímabilum sem liðin eru frá því deildin var stofnuð. Fjöldi leikmanna er að nálgast 1.000.