7 okt. 2000KFÍ sigraði Þór Ak. í fyrri leik liðanna í Kjörísbikarnum í kvöld, föstudagskvöld, 86-83. Leikurinn fór fram á Ísafirði, en síðari leikur liðanna verður einnig á á Ísafirði kl. 14:00 á morgun, laugardag. Búast má við mikilli spennu í þeim leik þar sem fá stig skildu liðin að í kvöld. Í Kjörísbikarnum telja samanlögð úrslit beggja leikjanna hvort liðið kemst áfram í keppninni. Íslandsmeistarar KR unnu sigur á Stjörnunni í Ásgarði, 83-106, og skoraði Ólafur Jón Ormsson 36 stig fyrir KR í leiknum. Jón Arnór Stefánsson kom næstur með 22 stig (öll í fyrri hálfleik) og Arnar Kárason gerði 18. Hjá Stjörnunni gerði Örvar Kristjánsson 19 stig, Shiran Þórisson 18 og Sigurjón Lárusson 16. Önnur úrslit í Kjörísbikarnum í kvöld urðu þau að ÍA tapaði fyrir UMFN 67-140, Þór Þ. lá gegn UMFG, 89-125 og Snæfell beið ósigur gegn Tindastól, 56-125.