17 nóv. 2000Landsliðið undirbýr sig nú af krafti fyrir leikinn gegn Úkraínu í Laugardalshöll á miðvikudaginn. Æft verður stíft um helgina og tíu manna liðið sem leika mun leikinn gegn Úkraínu verður tilkynnt eftir æfingu á sunnudagskvöld. Æft verður í Strandgötu í Hafnarfirði í kvöld kl. 17:00 og á morgun verða æfingar í Keflavík kl. 12-14 og 16-18. Á sunnudag verður síðan æfing kl. 20:00 í Grindavík. Fjölmiðlamönnum er velkomið að kíkja inn á þessar æfingar. Allir strákarnir í hópnum eru heilir og klárir í slaginn nema Jón Nordal Hafsteinsson úr Keflavík sem á við meiðsl að stríða og er í meðferð hjá Ísak Leifssyni sjúkraþjálfara liðsins.