28 nóv. 2000Aganefnd KKÍ hefur dæmt tvo leikmenn Hattar, þá Jason Harden og Davíð F. Jónsson, í eins leiks bann. Þeir félagar taka út bannið í leik Hattar og ÍA nk. laugardag. Þeir félagar fengu brottrekstrarvillu í leik Hattar og Þórs í Þorlákshöfn sl. sunnudag og voru kærðir til aganefndar í kjölfarið fyrir óprúðmannlega framkomu. Bannið tekur gildi á hádegi á föstudag og þeir félagar verða því ekki með Hetti í leiknum gegn ÍA á laugardaginn kemur.