1 des. 2000Frá því nýi KKÍ-vefurinn kom á netið hefur hann notið mikillar hylli netverja. Á nítjánda þúsund heimsókna komu á vefinn í október, fyrsta heila mánuðinn frá því hann fór í loftið. Í nýliðnum nóvember mánuði voru heimsóknir einnig margar á vefinn eða 14.300. Mánudagar eru vinsælustu dagarnir og síðan dregur úr heimsóknum eftir því sem líður á vikuna. Fæstar heimsóknir eru á vefinn á laugardögum. Sá tími dags sem vinsælastur er hjá netverjum er milli 13 og 14 á daginn, einnig er mjög margar heimsóknir milli 11 og 12 á morgnana. KKÍ mun halda áfram að byggja vefinn upp og leggja áherslu á að öll úrslit skili sér fljótt og örugglega inn á úrslitasíðurnar. Tölfræði leikja í efstu deildim karla og kvenna á einnig að vera komin á sinn stað í síðasta lagi tveimur klukkustundum eftir að leik líkur. KKÍ hvetur notendur vefjarins til að koma með ábendingar um hvað betur mætti fara og reynt verður að laga vefinn að þörfum þeirra sem hann nota. Senda vefstjórum [p+]kki@kki.is[p-]póst[slod-]