3 jan. 2001Óhætt er að segja að kki.is hafi fengið góðar á síðasta ári. Alls voru 42.228 heimsóknir á vefinn á árinu, en vefurinn fór í loftið 26. september. Heimsóknir í desember voru 9.498. Mesta aðsókn fékk vefurinn í október, en þá heimsóttu netverjar hann 18.400 sinnum. Nokkuð færri heimsóknir voru í nóvember sem skýrist eflaust af því að hlé var á Epson-deildinni vegna landsleikjanna. Þá voru heimsóknir í desember ekki margar enda margir frídagar. Búast má við því að í janúar verði heimsóknir álíka margar og í nóvember eða um 14.000 og í febrúar gæti heimsóknum fjölgað lítillega og í mars og apríl átti heimsóknum að fjölga talsvert vegna úrslitakeppna sem þá eru í gangi. Ef tekið er mið af 3 síðustu mánuðum ársins 2000 má búast við því að heimsóknir á kki.is verði á milli 160.000 - 170.000 á árinu 2001. Mánudagar eru vinsælustu dagarnir á kki.is og vinsælasti tími dagsins er milli 11 12 á morgnana.