4 jan. 2001Keppni í Epson-deildinni hefst á ný í kvöld eftir jólafrí og er heil umferð á dagskránni. Mörg lið mæta sterkari til leiks með nýja, en þó nokkuð þekkta, leikmenn innanborðs. Þrír leikmenn sem leikið hafa erlendis fyrir áramót og tveir nýir erlendir leikmenn eru á leikmannalistum félaganna nú í byrjun nýs árs. Fyrstan skal telja miðherja landsliðsins, Friðrik Stefánsson, sem kominn er heim frá Finnlandi og mun leika með UMFN. Þá eru nokkrir strákar sem leikið hafa með menntaskólaliðum í Bandaríkjunum komnir heim á fornar slóðir. Í hópi þeirra eru þeir Hlynur Bæringsson, sem leika mun með Skallagrím og Ingvar Guðjónsson sem aftur er kominn í leikmannahóp Hauka. Þá er kominn nýr erlendur leikmaður í herbúðir Grindvíkinga, en Bandaríkjamaðurinn Kim Lewis, sem átti við meiðsl að stríða, verður ekki meira með liðinu í vetur. Í hans stað Panamamanninn Kevin Daley, sem síðast lék með liði í Kostaríka. Daley þessi, sem að sögn Grindvíkinga þykir hafa ótrúlegan stökkkraft, verður með UMFG gegn Val í kvöld. Þá hafa Þórsarar á Akureyri endurheimt Daniel Maurice Spillers, sem lék með liðinu í fyrra. Hann mun leysa Clifton Bush af hólmi, en Þórsarar ákváðu um jólin að láta hann fara og fá Spillers í staðinn. Spillers lék við góðan orðstýr á Akureyri í fyrra og féll afar vel inn í leik liðsins. Spillers verður með Þórsurum gegn Skallagrím í kvöld. Eftirtaldir leikir eru á dagskrá Epson-deildarinnar í kvöld: Skallagrímur - Þór Ak. Valur - UMFG Haukar - Keflavík KFÍ - Hamar KR - ÍR UMFN - Tindastóll