11 jan. 2001Leik Þórs og KFÍ sem vera átti í Epson-deildinni í kvöld hefur verið frestað vegna ófærðar. Nýr leiktími er fimmtudagurinn 18. janúar kl.20:30. Versnandi veður er á landinu og hafa flugsamgöngur farið úr skorðum. Ekkert hefur verið flogið til Ísafjarðar í dag hvorki frá Reykjavík né Akureyri. En þrír leikir eru á dagskrá í Epson-deildinni í kvöld. ÍR - UMFN í Seljaskóla, Skallagrímur - Valur í Borgarnesi og Hamar - Haukar í Hveragerði, en sá leikur verður sýndur beint á Sýn. Leikir kvöldsins hefjast kl. 20:00.