23 jan. 2001Körfuknattleikssamband Íslands hefur ákveðið að Georg Kr. Lárusson, forstjóri Útlendingaeftirlitsins, verði heiðursgestur KKÍ á leik Íslands gegn Makedóníu í Evrópukeppninni í körfuknattleik sem fram fer á morgun kl. 18.00. Georg átti sinn stóra þátt í að málefni Makedóníumanna leystust farsællega í dag. Jafnframt hefur KKÍ átt mjög góð samskipti við Útlendingaeftirlitið í gegn um árin þegar erlend landslið koma til landsins.