8 feb. 2001Jón Arnar Ingvarsson Haukum var mjög nálægt því að ná þrefaldri tvennu í leiknum gegn KFÍ í kvöld. Jón Arnar gerði 31 stig, gaf 10 stoðsendingar og hirti 9 fráköst. Nýtingin var einnig góð hjá Jóni Arnari 9 af 12 skotum utan af velli rötuðu rétta leið, sem og 12 af 13 vítaskotum.Í desember sl. náði Jón Arnar þrefaldri tvennu í leik gegn Grindavík. Þá var hann með 22 stig, 14 fráköst og 11 stoðsendingar. Hann var því aðeins einu frákasti frá því að endurtaka það afrek í gærkvöldi. Hjá KFÍ var Dwayne Fontana að venju stigahæstur, hann var með 37 stig og 11 fráköst. Shawn Myers gerði 21 stig og tók 20 fráköst fyrir Tindastól gegn Keflavík í kvöld, en fyrir Keflavík gerði Jón Nordal Hafsteinsson 17 stig og hirti 21 frákast. Í Grindavík var Kevin Daley stigahæstur með 19 stig, en hittnin var aðeins 8 ofaní af 23 tilraunum. Í liði Hamars gerði Chris Dade 31 stig og Skarphéðinn Ingason gerði 24. Keith Vassel gerði í kvöld 16 stig og tók 9 fráköst fyrir KR gegn Skallagrím. Jónatan Bow gerði 1 stig í leiknum. Hjá Skallagrím var Evgenij Tomiloski stigahæstur með 12 stig. Hjá Val gerði Herbert Arnarson 33 stig gegn sínum gömlu félögum í ÍR. Bryan Hill skoraði 12 stig og hirti 14 fráköst. Hjá ÍR gerði Eiríkur Önundarson 25 stig og Cedric Holmes 22 stig og 9 fráköst. Þá gerði Steinar Arason 20 stig og Sigurður Þorvaldsson skoraði 10 stig og tók 14 fráköst fyrir ÍR