14 feb. 2001Aganefnd KKÍ hefur dæmt Svan D. Svansson leikmann meistaraflokks ÍA í tveggja leikja bann, en Svani var vísað af leikvelli í leik ÍA og Ármanns/Þróttar í 1. deild karla sl. föstudagskvöld. Í kjölfarið var Svanur kærður til aganefndar fyrir sérlega grófan leik eða ofbeldi. Svanur mun því missa af leikjum ÍA gegn Breiðabliki og Stjörnunni.