1 mar. 2001Birgir Mikaelsson er í liði Skallagríms sem mætir bikarmeisturum ÍR í Epson-deildinni í Seljaskóla í kvöld. Þetta er fyrsti leikur Birgis í vetur en hann er einn af leikjahæstu leikmönnum úrvalsdeildar frá upphafi. Birgir, sem þjálfaði Skallagrímsliðið fyrir nokkrum árum, lék á sínum tíma 66 landsleiki fyrir Íslands hönd, þann síðasta 1993. Fróðlegt verður að sjá hvort Birgir kemur inná í kvöld, en fyrir er í liði Skallagríms Alexender nokkur Erolinskij, sem er 41 árs gamall. Birgir er unglamb við hlið hans, aðeins 35 ára. Úrslit leikja kvöldsins verða vonandi komin á Epson-deilddar síðuna fjótlega eftir að leikjum kvöldsins líkur.