1 mar. 2001Skallagrímsmenn unnu frækilegan sigur á ÍR-ingum í Seljaskóla í kvöld 84-86 og hafa þar með góða stöðu sem áttunda liðínn í úrslitakeppni Epson-deildarinnar. ÍR-ingar, sem léku í kvöld án Eiríks Önundarsonar, höfðu frumkvæðið alveg þangað til í lokin að Skallagrímsmenn náðu yfirhöndinni. Athygli vakti að Birgir Mikaelsson var í leikmannahóp Skallagríms í kvöld og kom nokkuð við sögu í leiknum. Önnur úrslit í kvöld urðu þau að Grindvíkingar tryggðu sig endanlega inn í úrslitakeppina með 95-79 sigri á Haukum. Keflavík vann sigur á Þór 105-91, Tindastóll vann KFÍ 103-92 og Valur féll úr Epson-deildinni eftir eins stig tap gegn Hamri í Grafarvogi 86-87.