4 mar. 2001Tveimur leikjum sem vera áttu í Epson-deildinni í dag kl. 16 hefur verið frestað til morguns vegna veðurs og ófærðar. Þetta eru leikir KFÍ - ÍR og Þórs Ak - Hamars. Aðrir leikir fara fram samkvæmt áður auglýstri dagskrá. Þá hefur leik ÍS og ÍV í 1. deild karla sem vera átti kl. 14:00 í dag í Hagaskóla verið frestað til kl. 20:30 og verður leikurinn í íþróttahúsi Kennaraháskólans.