13 mar. 2001Dómaranefnd KKÍ stendur fyrir þrekprófi í dag og verða allir dómarar sem dæma í úrslitakeppnum deildanna að standast það. Í hádeginu hlupu FIBA dómararnir Helgi Bragason, Kristinn Albertsson og Leifur Garðarsson og stóðust þeir allir prófið með prýði. Aðrir dómarar hlaupa kl. 18.00 í dag.