15 mar. 2001Aganefnd KKÍ hefur dæmt Örvar Kristjánsson þjálfara unglingaflokks Stjörnunnar í tveggja leikja bann vegna atburða sem áttu sér stað í leika KR og Stjörnunnar 10. mars sl. Örvar fékk dæmda á sig tæknivillu og síðan brottrekstrarvillu og var í kjölfarið kærður til aganefndar fyrir óhæfileg mótmæli og mótþróa. Bannið tekur gildi frá með hádegi á morgun, föstudag. Hann mun því ekki stýri liði Stjörnunnar í úrslitakeppni unglingaflokks, sem fram fer á næstunni.