21 mar. 2001Þrír leikmenn voru dæmdir í eins leiks bann á fundi aganefndar í gær. Þetta eru Skarphéðinn Ingason leikmaður Hamars í Epson-deildinni, Hermann Þórsson leikmaður Reynis H. í 2. deild karla og Björgvin Björnsson leikmaður drengjaflokks KR. Skarphéðinn Ingason Hamri fékk dæmdar á sig tvær tæknivillur í leik Hamars og Keflavíkur í Hveragerði á sunnudaginn var og því rekinn af leikvelli. Í kjölfarið var hann kærður til aganefndar fyrir óprúðmannlega framkomu. Hermann Þórsson fékk dæmda á sig tæknivillu og síðan brottresktrarvillu í leik Reynis H. gegn Reyni S. í úrslitakeppni 2. deild karla 16. mars sl. Hann var síðan kærður til aganefdar fyrir óprúðmannlega framkomu. Björgvin Björnsson fékk dæmda á sig tæknivillu og síðan brottresktrarvillu í leik KR og ÍR í úrslitum bikarkeppni drengjaflokk sl. sunnudag. Hann var síðan kærður til aganefndar fyrir óprúðmannlega framkomu. Þessir leikmenn taka út leikbönn sín frá og með hádegi nk. föstudag 23. mars. mt: Skarphéðinn Ingason