25 mar. 2001Njarðvík og Tindastóll eru komin 1-0 yfir í undanúrslitum Epson-deildarinnar eftir sigra á KR og Keflavík í kvöld. Njarðvík vann KR 89-84 og Tindastóll vann Keflavík 109 - 87 á Sauðárkróki. Næstu leikir liðanna verða á þriðjudag. Þá verða KR og Keflavík á heimavelli.