27 mar. 2001Íslandsmeistarar KR töpuðu öðrum öðru sinni fyrir UMFN í undanúrslitum úrslitakeppninnar í Epson-deildinni í framlengdum leik í KR-húsi í kvöld, 95-96. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 87-86 og 45-47 í leikhléi. Keith Vassell skoraði 41 stig fyrir KR og var með 14 fráköst. Jón Arnór Stefánsson gerði 18 stig, tók 10 fráköst, en tapaði boltanum 8 sinnum. Hjá Njarðvík var Brebton Birmingham með 29 stig, 10 stoðsendingar, 6 fráköst, en 8 tapaða bolta. Jen Hansen gerði 20 stig og hirti 12 fráköst. Í Keflavík unnu heimamenn 106-90 sigur á Tindastól og er staðan því jöfn í einvígi liðanna, en UMFN hefur 2-0 yfir gegn KR. Næstu leikir í undanúrslitunum verða á fimmtudag.