27 mar. 2001Úrslitamótin í minnibolta drengja og 8. flokki kvenna fóru fram um síðustu helgi. Í minniboltanum var leikið í Njarðvík og voru það heimamenn sem hömpuðu Íslandsmeistaratitli. Mótið í 8. flokki kvenna fór fram í KR-húsinu. síðasti leikur mótsins milli Keflavíkur og UMFG reyndist úrslitaleikur mótsins. Að lokum fór svo að Keflavík tryggði sér Íslandsmeistaratitil, en UMFG varð í öðru sæti.