27 mar. 2001Undanúrslit Epson-deildarinnar halda áfram í kvöld, en mætast KR - UMFN í KR-húsi og Keflavík og Tindastóll í Keflavík. Heimaliðin eiga að harma að hefna frá því á sunnudagskvöld og þurfa sigur til að jafna metin í viðureignum liðanna. Leikirnir hejast kl. 20:00. Þá hefst úrslitakeppnin í unglingaflokki karla í kvöld með leik Breiðabliks og ÍA í Smáranum kl. 21:30.