28 mar. 2001Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir, íþróttakonan fjölhæfa frá Sauðárkróki, tók um helgina á móti norska meistaratitlinum í körfuknattleik með liði sínu, Gimle frá Bergen. Gimle vann þá yfirburðasigur á næstbesta liði úrvalsdeildarinnar, Asker, 97:57, varð meistari þriðja árið í röð og hefur félagið nú unnið síðustu 50 leiki sína í norsku deildakeppninni. Þetta kemur fram á mbl.is Gimle hafði þegar tryggt sér titilinn þegar fimm leikjum var ólokið í deildinni. Dúfa Dröfn lék 16 af 18 leikjum Gimle í deildakeppninni. Hún spilaði að meðaltali 12 mínútur í leik og skoraði 4 stig að meðaltali, mest 11 í einum leik. [v+]http://www2.mbl.is/frettir-ifx/sport/frett_forsidu?nid=697417[v-]Öll fréttin af mbl.is[slod-]