28 mar. 2001Fjórir leikmenn frá fjórum félögum hafa verið dæmdir í eins leiks bann hver eftir að þeir voru reknir af leikvelli í 4. umferð drengjaflokks um síðustu helgi. Það var hart barist í 4. umferð drengjaflokks sem fram fór í Rimaskóla í Grafarvogi um síðustu helgi. Fjölnismenn fengu reynda dómara til að dæma í mótinu og ekki veitti af því fjörið var full mikið á köflum. Áður en yfir lauk höfðu fjórir leikmenn verið reknir í bað. Þrír þeirra voru síðan kærðir til aganefndar fyrir óprúðmannlega framkomu og einn fyrir sérlega grófan leik eða ofbeldi. Þetta voru þeir Kristinn Jónasson Haukum, Sindri Sigurðsson KR, Hjalti Vilhjálmsson Val/Fjölni sem kærðir voru fyrir óprúðmannlega framkomu og Kristinn H. Runólfsson Breiðabliki sem kærður var fyrir sérlega grófan leik eða ofbeldi. Fjórmenningarnir voru allir dæmdir í eins leiks bann, sem tekur gildi frá og með hádegi föstudaginn 30. mars.