21 des. 2002Keflavíkurstúlkur urðu í dag Kjörísbikarmeistarar kvenna eftir [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2003/00001604/16040501.htm[v-]80-54[slod-] sigur á KR í úrslitaleik í Smáranum. Þetta er fyrsta sinn sem hið sigursæla kvennalið Keflavíkur (9 Íslandsmeistaratitlar og 10 bikarmeistaratitlar) vinnur þennan titil en Keflavík hafði tapað fyrstu tveimur úrslitaleikjum keppninnar sem var nú leikin í þriðja sinn. Keflavík hafði örugga forustu allan tímann og höfðu 40-15 yfir í hálfleik. Báðir Kjörísbikararnir fóru því til Keflavíkur í vetur því karlaliðið varð einnig meistari í nóvember síðastliðnum. Sonia Ortega var með 16 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar fyrir Keflavík, Erla Þorsteinsdóttir gerði 14 stig og tók 10 fráköst á aðeins 22 mínútum, Anna Maria Sveinsdóttir var með 13 stig á 16 mínútum og fyrirliðinn Kristín Blöndal skoraði 10 stig, gaf 6 stoðsendingar og tók fimm fráköst. Hjá KR var Hildur Sigurðardóttir með 16 stig og 11 fráköst en Hildu tók 7 frákastanna í sókn. Þá var Helga Þorvaldsdóttir með 10 stig og 11 fráköst. Kristín Björk Jónsdóttir, fyrirliði KR-liðsins síðustu tvö ár sem hefur verið við nám í Bandaríkjunum í vetur lék með KR í leiknum, skoraði 1 stig og tók 3 fráköst á 14 mínútum. Keflavík vann þar með alla fimmtán leiki sína fyrir jól, tíu leiki í deildinni, fjóra leiki í Kjörísbikarnum og svo einn í bikarnum. Keflavíkurliðið vann ennfremur sinn áttunda leik í röð með meira en 20 stiga mun eða allt frá 19 stiga sigri liðsins í Grindavík 9. nóvember síðastaliðnum. Yfirlit yfir sögu lokahluta fyrirtækjabikars kvenna, svonefnd keppni hinna fjögurra fræknu, má finna [v+]http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=122[v-]hér[slod-].