9 feb. 2016Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram fyrir úrslitaleiki meistaraflokka í Poweradebikarnum sem framundan eru þann 13. febrúar. Kvennaleikurinn verður kl. 14:00 og karlaleikurinn kl. 16:30.
 
Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta við hurð, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum á viðburðinn.
 
Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miðana fyrir úrslitaleikina í eigin persónu i dag þriðjudaginn 9. febrúar á skrifstofu KKÍ á milli 12:00 og 15:30.

Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis:
Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst á skrifstofu KKÍ á sama tíma (á milli 12:00 og 15:30) til þess að láta taka frá fyrir sig miða sem síðan verður hægt að nálgast í Laugardalshöll á leikdegi þegar miðasala opnar gegn framvísun aðgönguskírteinis í andyri. Tölvupóstinn skal senda á kki@kki.is

Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars:
„Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“

Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni hérna