21 okt. 2016Í hádeginu í dag verður dregið í Bikarkeppni KKÍ en nýr samstarfsaðili verður kynntur til leiks og nýtt nafn keppninnar opinberað. Undanfarin ár hefur bikarinn borið nafnið Poweradebikarinn og þakkar KKÍ Vífilfelli kærlega fyrir samstarfið undanfarin ár. Nú er komið að næsta kafla í sögu bikarkeppninnar og mun hann því fá nýtt nafn fyrir næstu þrjú árin. 

Dregið verður kl. 12:15 og hafa félögin og fjölmiðlar verið boðaðir á fund þar sem drátturinn fer fram. KKÍ mun uppfæra fréttir hér á kki.is að honum loknum og frá fundinum beint á twitter og facebook síðu KKÍ.

#korfubolti