4 jan. 2017

Fjarnám þjálfaramenntunar Körfuknattleikssambands Íslands mun hefjast mánudaginn 23. janúar. Námið eru tvö námskeið þar sem kennt verður KKÍ þjálfari 1.b og 2.b.

Námið er í fjarnámi og unnið í tölvu og með tölvupóstum (2.b heimsóknum). Fjarnámið er hluti af nýju menntakerfi KKÍ. Síðustu misseri hefur KKÍ lagt nokkra vinnu í að bæta þjálfaramenntun við góðar undirtektir innan hreyfingarinnar.  

Þjálfaranám 1.b námið stendur yfir til 13. febrúar. Nánar um 1.b hér 
Þjálfaranám 2.b námið stendur yfir til 1. maí. Nánar um 2.b hér

 
Opið er fyrir skráningu til og með föstudagsins 20. janúar 2017.

 
Þátttökugjald á 1.b er kr. 8.000-. Öll námskeiðsgögn eru innifalin og send á netfang nemenda.
Þátttökugjald á 2.b er kr. 21.000-. Öll námskeiðsgögn eru innifalin og send á netfang nemenda.

Skráning fer fram á kki@kki.is. Taka þarf fram heiti á námskeið sem verið er að skrá sig á og einnig skal koma fram fullt nafn þátttakanda, félag, kennitala, netfang og símanúmer.

Rétt til þátttöku á 1.b stigi hafa allir sem lokið hafa grunnskólaprófi.    
Rétt til þátttöku á 2.b stigi hafa allir sem lokið hafa lokið þjálfara 1.