6 jan. 2017

KKÍ stendur fyrir dómaranámskeiði á höfuðborgarsvæðinu helgina 4.-5. febrúar 2017.

Athygli er vakin á að þetta námskeið verður ekki í fjarnámi þar sem bóklegi hlutinn fer fram í kennslustofu. Verklegi hlutinn verður eftir sem áður í íþróttasal.

Dagskrá:

Laugardagur 4. febrúar:
Íþróttamiðstöðin í Laugardal 09:00-16:00 · Bóklegt

Sunnudagur 5. febrúar:
Valsheimilið 09:30-11:00 · Bóklegt próf
Valsheimilið 12:00-16:00 Verklegt próf

Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 1. febrúar. Námskeiðið stendur öllum til boða og mun kosta 5.000,- kr.

Skráning er á kki@kki.is og þarf að taka fram nafn, kennitölu, símanúmer, heimilisfang, netfang og félag