13 jan. 2017

Um helgina fara fram undanúrslit meistaraflokka karla og kvenna í Maltbikarnum en einnig fara fram fjölmargir yngriflokka leikir í bikarkeppninni víðsvegar um landið.

RÚV mun sýna beint frá tveim leikjum um helgina. 
Á laugardaginn verður sýnt beint frá leik Grindavíkur og Keflavíkur kl. 16:00.
Á sunnudaginnverður bein útsendinga að norðan frá leik Þórs Akureyri og Grindavíkur kl. 19:30.

Dregið í undanúrslit
Þriðjudaginn 17. janúar verður dregið í 4-liða úrslit karla og kvenna í Maltbikarnum. Einnig verður fundur með þeim félögum sem fara í Höllina á undan bikardrættinum og farið yfir framkvæmdina og önnur mál er tengjast úrslitahelginni.

Fundurinn og bikardrátturinn verða í höfuðstöðvum Ölgerðinnar að Grjóthálsi 7-11.

Kl. 12:15 · Fundur með félögunum
Kl. 13:00 · Maltbikarinn - bikardráttur í 4-liða úrslita