22 feb. 2017Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál á fundi sínum í vikunni.

Mál nr. 33/2016-2017:
Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál og með hliðsjón af ákvæði greinar 36.3.4 í gildandi leikreglna FIBA, skal hinn kærði, Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, sæta 1 leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Skallagríms og Snæfells í Dominosdeild karla, sem leikinn var 19. febrúar 2017".

Mál nr. 34/2016-2017:
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Eiríkur Guðmundsson, leikmaður Leiknis, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hrunamanna/Laugdæla og Leiknis í 2.deild meistaraflokks karla, sem leikinn var 16. febrúar 2017".

Úrskurðurinn tekur gildi á hádegi á morgun fimmtudag.