26 jún. 2017Nú er leikjum dagsins lokið í Finnlandi og fóru leikar þannig að öll liðin okkar töpuðu sínum leikjum sem voru þeir fyrstu á mótinu. Finnsku liðin hafa verið mjög góð á undanförnum árum og ávalt hörku leikir milli landanna tveggja. Í ár voru þeir sterkari og náðu í fjóra sigra. 

Ítarlega umfjallanir birtast á karfan.is í kvöld en úrslit leikjanna urðu þessi:
ISL 35:85 FIN · U16 drengja
ISL 75:83 FIN · U16 drengja
ISL 60:79 FIN · U18 stúlkna
ISL 69:74 FIN · U18 drengja

Morgundagurinn verður gegn Noregi og hefst fyrsti leikur kl. 10:45 að íslenskum tíma.

#korfubolti