27 jún. 2017Nú er leikdegi tvö á NM í Finnlandi lokið og stóðu öll okkar lið sig vel. U16 lið kvenna, U16 lið drengja og U18 lið stúlkna unnu öll sín leiki. U18 drengir töpuðu sinni viðureign gegn Norðmönnum í dag í lokaleik dagsins í hörkuleik.

Ítarlega umfjallanir birtast á karfan.is í kvöld en úrslit leikjanna urðu þessi:

ISL 50:46 NOR · U16 stúlkna
ISL 65:48 NOR · U18 stúlkna
ISL 87:47 NOR · U16 drengja
ISL 57:62 NOR · U18 drengja

Morgundagurinn verður gegn Svíum og hægt verður að fylgjst með lifandi tölfræði og útsendingum í gegnum tengla sem eru á forsíðunni á kki.is. Leikjplan morgundagsins birtist á kki.is í fyrrmálið en fyrsti leikurinn verður kl. 10:45 hjá U18 stúlkna.

#korfubolti