27 jún. 2017

🇮🇸Ísland - 🇳🇴Noregur · 27. júní

Í dag þriðjudag er komið að öðrum leikdeginum á NM og er hann gegn Noregi. Þá munu öll okkar lið mæta norsku liðunum í leikjum dagsins. Liðin okkar hófu leik í gær gegn Finnum og töpuðust allir leikir íslensku liðanna. Í dag eru okkar lið staðráðin í að bæta upp fyrir það og ætla að sækja sigur.

Þátttökuþjóðirnar á NM eru Danmörk, Eistland, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð.


Leikir dagsins: (ísl. tími):

10:45 U16 stúlkna

12:45 U18 stúlkna

15:15 U16 drengja

17:30 U18 drengja


Lifandi tölfræði:

Allir leikir mótsins verða í lifandi tölfræði á www.basket.fi.

 

Beinar netútsendingar:

Finnska sambandið sendir beint út frá öllum völlunum á YouTube-rás sinni: basketfinland.

https://www.youtube.com/user/basketfinland

 
#korfubolti