30 ágú. 2017

KKÍ í samstarfi við finnska körfuknattleikssambandi standa fyrir veglegu stuðningsmannasvæði eða „FAN-ZONE“ fyrir alla stuðningsmenn sína. FIBA mun að auki hafa svæði sitt við hliðina okkar. Svæðið verður staðsett á Kansalaistori Square í miðbæ Helsinki.

Hér er hægt að nálgast upplýsingahefti frá Finnum á .pdf skjali.

Á stuðningsmannasvæðinu verður að finna veitingatjöld og veitingasölu, stóla og borð, risaskjá (sem sýnir alla kvöldleiki Finna), útikörfuboltavelli, sölubása og fleira skemmtilegt. Einnig verður risasvið þar sem meðal annars íslenskir listamenn munu troða upp fyrstu dagana. 

Ljóst er að mikil stemning mun myndast fyrir og eftir leiki á svæðinu en það er í hjarta miðbæjar Helsinki. 

Aðalestarstöðin er um 300 metrum frá Fan Zone og þaðan fara allar lestir á stoppistöðina Pasila Böle við Höllina þar sem keppt er. Sú lestarferð tekur um 6 mín. og fara lestir á um 5 mín. fresti frá aðalstöðinni. Það er því ljóst að mjög þægilegt verður að komast á milli miðbæjarinns og Hallarinnar.

KKÍ hvetur alla til þess að mæta fyrir leiki og búa til góða stemmingu áður en haldið er í Höllina. Einnig viljum við biðja fólk um að leggja af stað tímanlega í Höllina. Við erum að gera ráð fyrir því að leggja af stað einum og hálfum tíma fyrir leik. Það tekur allt tíma komast í lestina og inn í Höllina.


KKÍ hefur fengið Úlf Úlf og þá félaga Sverrir Bergmann og Halldór Fjallabróður til liðs við sig til að halda uppi stuðinu meðal íslenskra stuðningsmanna í „Fan-Zone-inu“. Þá verða þeir á sviði inni á svæðinu fyrir okkar leiki fimmtudag, laugardag og sunnudag til að rífa upp stemminguna fyrir okkar leiki.
 
The Circus er opinber skemmtistaður fyrir alla stuðningsmenn Finnlands og Íslands og verður dagskrá þar flest kvöld. Föstudagskvöldið 1. september er tileinkað íslenskum stuðningsmönnum. Þar munu Úlfur Úlfur og SS SÓL trylla líðinn. Við vekjum athygli á því að dagskráin hefst snemma eða kl. 22:00 húsið opnar kl. 21:30 þannig að nú er um að gera að skipuleggja sig vel og mæta tímanlega.
Það þarf að kaupa miða á Circus. Hægt er að kaupa miða bara á föstudaginn en einnig er hægt að kaupa vikupassa. Hér er hægt að kaupa miða á Circus

The Circus
Salomonkatu 1–3
Narinkkatori 00100 
Helsinki

 
 
Dagskráin fyrir íslenska stuðningsmenn í Fan-Zone og Circus.

Fimmtudagur 31. ágúst
13:30 Fan-Zone opnar
14:00 Iceland Pregame Show Sverrir Bergmann og Halldór
20:00 Finnland-Frakkland  Sýndur á stórum skjá í Fan-Zone
Föstudagur 1. september
15:00 Fan-Zone opnar Helsinki Festival special guest concert
16:00 Celebrity Free-Throw keppni
22:00 Íslendingapartý á Circus Úlfur Úlfur og SSSól
Laugardagur 2. september
11:00 Fan-Zone opnar
11:30 Iceland Pregame Show Sverrir Bergmann og Úlfur Úlfur
Sunnudagur 3. september
11:30 Iceland Pregame Show Sverrir Bergmann og Úlfur Úlfur


Stuðningsmenn Íslands á Facebook
KKÍ hvetur alla stuðningsmenn í Helsinki til að vera með í grúppunni „Stuðningsmenn Körfuboltans á Íslandi“ á facebook! Þar eru líflegar umræður og fréttir sem komast á framfæri fljótt ef þess þarf og eru þeir sem mættir eru til Finnlands duglegir að birta myndir og benda á ýmislegt gagnlegt og skemmtilegt.