19 sep. 2017Þjálfurum allra flokka er boðið á haustfund dómara sem verður laugardaginn 23. september kl. 09:30-18:00 í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

Þetta er breyting frá því sem áður var og er það stefna dómaranefndar að opna meira á samstarf dómara og þjálfara. Þar verður farið yfir breytingar á leikreglum, áherslur keppnistímabilsins og einnig munu þeir dómarar KKÍ sem eru með FIBA réttindi segja frá reynslu sinni á erlendri grundu. Á fundinn kemur Neil Wilkinson sem er tengiliður FIBA við Ísland er tengist dómaramálum og verður hann með nokkur erindi er varða reglubreytingar.

Hægt er að sjá dagskrá haustfundarins með því að smella hér.

Skrá sig þarf á fundinn með því að senda póst á kki@kki.is