25 okt. 2017
Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir sex mál í vikunni.
Úrskurður nr. 9/2017-2018
Með vísan til ákvæðis j. liðar 1. mgr. 13. gr.
reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Brynjar Þór Björnsson,
leikmaður mfl. ka. hjá KR, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik
Stjörnunnar og KR í Domino‘s deild, karlaflokki, sem leikinn var þann 13.
október 2017.
Úrskurður nr. 10/2017-2018
Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr.
reglugerðar um aga- og úrskurðarmál
skal hinn kærði, Jón Arnór Stefánsson, leikmaður mfl. ka. hjá KR, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í
leik Stjörnunnar og KR í Domino‘s
deild, karlaflokki, sem leikinn var þann 13. október 2017.
Úrskurður nr. 11/2017-2018
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr.
reglugerðar um aga- og úrskurðarmál
skal hinn kærði, Pavel Ermolinskij, leikmaður mfl. ka. hjá KR, hljóta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik
Stjörnunnar og KR í Domino‘s deild,
karlaflokki, sem leikinn var þann 13. október 2017.
Úrskurður nr.
12/2017-2018
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr.
13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ingi Pétursson,
leikmaður mfl. hjá ÍB, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik ÍB gegn
Leikni í Íslandsmóti 2. deild kk, , sem leikinn var þann 21. október
2017.
Úrskurður nr. 13/2017-2018
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr.
13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Viktor Alexandersson,
leikmaður mfl. hjá Snæfelli, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik
Snæfells og Hamars í íslandsmóti, 1. deild kk, , sem leikinn var þann 22.
október 2017.
Úrskurður nr. 14/2017-2018
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr.
13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Jón Valgeir
Tryggvason, leikmaður mfl. hjá ÍB, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik
ÍB gegn Val í 32 liða úrslitum bikarkeppni KKÍ kk, , sem leikinn var þann 14.
október 2017.