9 nóv. 2017
Íslenska karlalandsliðið mun hefja leik í undankeppni HM 2019 með tveimur leikjum í nóvember. Um er að ræða nýtt fyrirkomulag og nú er leikið í undankeppni fyrir HM líkt og gert hefur verið fyrir EM undanfarin ár. Þá verður einnig leikið í landsliðsgluggum hjá körlunum en ekki yfir sumartímann og á haustin eins og áður. Fyrsti leikurinn hjá strákunum fer fram í Tékklandi gegn Tékkum föstudaginn 24. nóvember og síðan hér heima í Laugardalshöll gegn Búlgaríu þann 27. nóvember. Lokakeppnin sjálf fer svo fram í Kína eftir tvö ár.
Craig Pedersen þjálfari og aðstoðarþjálfarar hans Arnar Guðjónsson og Finnur Freyr Stefánsson hafa valið þá 12 leikmenn sem skipa landsliðshópinn fyrir landsliðsgluggann í nóvember. Liðið mun halda til Tékklands mánudaginn 20. nóvember til æfingar og dvalar fram að leik gegn heimamönnum á föstudeginum 24. nóvember. Útileikurinn verður sýndur beint á RÚV 2. Liðið ferðast svo heim daginn eftir og mun mæta til leiks á mánudaginn 27. nóvember í Höllinni og leika gegn Búlgaríu. Auk Tékklands og Búlgaríu leika Finnar með okkur í riðli og koma þeir til Íslands í næsta glugga í seinnihluta febrúar 2018.

Landsliðshópur karla · Nóvember 2017

Nafn Lið F. ár Hæð Landsleikir
Brynjar Þór Björnsson KR 1988 192 67
Haukur Helgi Pálsson Briem Cholet Basket (FRA) 1992 198 61
Hlynur Bæringsson Stjarnan 1982 200 116
Jakob Örn Sigurðarson Boras Basket (SWE) 1982 190 85
Kári Jónsson Haukar 1997 192 5
Kristófer Acox KR 1993 198 30
Logi Gunnarsson Njarðvík 1981 192 143
Martin Hermannsson Charleville (FRA) 1994 194 56
Ólafur Ólafsson Grindavík 1990 194 20
Pavel Ermolinskij KR 1987 202 67
Sigtryggur Arnar Björnsson Tindastóll 1993 180 5
Tryggvi Snær Hlinason Valencia (ESP) 1997 215 24

 

Alls voru 24 leikmenn skráðir til FIBA fyrir þennan fyrsta glugga og má sjá lista þeirra hér að neðan. Þjálfararnir hafa síðan valið þá 12 leikmenn sem munu mæta til leiks að þessu sinni. 

Fjórir bakverðir eru ekki með frá því í sumar á EuroBasket 2017 í sumar eru frá af ýmsum ástæðum. Inn koma þrír bakverðir og einn framherji í þeirra stað. Þetta eru þeir Kári Jónsson frá Haukum, Sigtryggur Arnar Björnsson frá Tindastól, Ólafur Ólafsson frá Grindavík og Jakob Örn Sigurðarson frá Boras Basket í Svíþjóð, en Jakob Örn er nú með í fyrsta sinn með landsliðinu síðan hann var með á EM 2015 í Berlín, en Jakob Örn er með mikla reynslu sem mun nýtast liðinu vel í komandi leikjum.

Eftirtaldir leikmenn eru frá að þessu sinni:

Jón Arnór Stefánsson: Frá vegna meiðsla.
Ægir Þór Steinarsson: Á leiki á Spáni á sama tíma en liðið hans leikur ekki í efstu deild og þarf því ekki að gefa leikmenn lausa í landslið samkvæmt reglum FIBA.
Elvar Már Friðriksson: Er í skóla í USA en NCAA er ekki undir FIBA og var vitað að hann kæmist ekki í landsliðsverkefni í vetur.
Hörður Axel Vilhjálmsson: Gaf ekki kost á sér að þessu sinni.

24 manna hópur skráður til FIBA:

Martin  Hermannsson Charleville Reims (FRA)
Haukar Helgi Pálsson Briem Cholet Basket (FRA)
Hlynur Bæringsson Stjarnan
Tryggvi Snær Hlinason Valencia (ESP)
Logi Gunnarsson Njarðvík
Pavel Ermolinskij KR
Ægir Þór Steinarsson Tau Castello (ESP)
Brynjar Þór Björnsson KR
Kristófer Acox KR
Jón Arnór Stefánsson KR
Kári Jónsson Haukar
Matthías Orri Sigurðarson ÍR
Sigtryggur Arnar Björnsson Tindastóll
Ólafur Ólafsson Grindavík
Axel Kárason Tindastóll
Sigurður Gunnar Þorsteinsson Grindavík
Dagur Kár Jónsson Grindavík
Tómas Hilmarsson Stjarnan
Ragnar Nathanaelsson Njarðvík
Hörður Axel Vilhjálmsson Astana (KAZ)
Breki Gylfason Haukar
Pétur Rúnar Birgisson Tindastóll
Jakob Örn Sigurðarson Boras Basket (SWE)
Emil Karel Einarsson Þór Þorlákshöfn

#korfubolti