11 nóv. 2017
Ívar Ásgrímsson og aðstoðarþjálfarar hans hafa valið þá 12 leikmenn sem skipa lið Íslands í dag gegn Svartfjallalandi. Þær Elín Sóley Hrafnkelsdóttir, Emelía Gunnarsdóttir og Embla Kristíndadóttir eru ekki í liðinu í dag.
Fyrirliði Íslands í dag er Helena Sverrisdóttir og varafyrirliði er Ragna Margrét Brynjarsdóttir.
Helena Sverrisdóttir er að fara spila sinn 65. landsleiks í dag og Sigrún Ámundadóttir er að fara klæðast íslensku treyjunni í 50. sinn.
Leikur Íslands og Svartfjallalands hefst kl. 16:00 í Laugardalshöll.
Ísland
Nr. Nafn Lið F. ár Staða Hæð Landsleikir
4 Helena Sverrisdóttir Haukar 1988 B 184 64
5 Hildur Björg Kjartansdóttir Legonés, Spánn 1994 F 188 17
6 Hallveig Jónsdóttir Valur 1995 B 180 10
7 Ragnheiður Benónísdóttir Valur 1994 M 188 3
9 Sigrún Sjöfn Ámundardóttir Skallagrímur 1988 F 181 49
10 Thelma Dís Ágústsdóttir Keflavík 1998 F 180 7
12 Sandra Lind Þrastardóttir Horsholm, DK 1996 M 182 14
13 Þóra Kristín Jónsdóttir Haukar 1997 B 173 2
15 Birna Valgerður Benónýsdóttir Keflavík 2000 F 185 3
22 Berglind Gunnarsdóttir Snæfell 1992 F 177 13
24 Guðbjörg Sverrisdóttir Valur 1992 B 180 10
25 Ragna Margrét Brynjarsdóttir Stjarnan 1990 M 186 40
Þjálfari: Ívar Ásgrímsson
Astoðarþjálfarar: Bjarni Magnússon og Hildur Sigurðardóttir